Mótmæli við hótel Heimis og írska liðsins

Það er farið að hitna enn frekar í kolunum í aðdragandanum að leikjum Heimis Hallgrímssonar og lærisveina í írska landsliðinu gegn Ísrael í Þjóðadeildinni. Hátt í 200 mótmælendur söfnuðust saman fyrir utan liðshótel Írlands í gærkvöldi og kröfðust þess að Írland myndi ekki spila við Ísrael. Írskum og palestínskum fánum var veifað. Yfir 160 írskir íþróttamenn skrifuðu undir opinberan undirskriftarlista þar sem krafist var að írska landsliðið myndi sniðganga leikina gegn Ísrael. Eins og Fótbolti.net fjallaði um í gær fóru ummæli Heimis, þar sem hann sagði ísraelska liðið vera að spila gegn þjóðarmorði, mjög illa ofan í ísraelska fótboltasambandið sem sendi frá sér harðorða yfirlýsingu.
Mótmæli við hótel Heimis og írska liðsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd