Karlmaður sem flutti hingað til lands og slasaðist alvarlega eftir nokkurra mánaða vinnu fær ekki þær tryggingabætur sem honum höfðu verið dæmdar í héraði. Landsréttur sneri fyrri dómi við. Dómararnir sögðu að ekki hefði verið sýnt fram á að víkja ætti frá almennum viðmiðum um bætur.Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sjóvá-Almennar til að greiða manninum 147 milljónir króna í bætur vegna örorku sem maðurinn hlaut í vinnuslysi. Frá því áttu að dragast greiðslur upp á 47 milljónir sem tryggingafélagið hafði greitt manninum á grundvelli síns mats.Bæturnar miðast við hverjir framtíðartekjumöguleikar mannsins hefðu verið ef ekki væri fyrir slysið.Tryggingafélagið og manninn greindi á um hvort miða ætti bætur við meðallaun síðustu þriggja ára eða launin sem maðurinn hafði í því starfi sem hann gegndi