„Við þurfum líka bara svolítið að læra að meta þetta og laga fegurðarskynið okkar að orkuskiptabyltingunni,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, þegar Vaðölduver var gangsett í síðustu viku.[1] Jafnframt hvatti hann andstæðinga vindorkuvera til að koma og virða þessi mannvirki fyrir sér.