Enn er óljóst hvort rússnesku ólígarkarnir Alisher Usmanov og Mikhail Friedman sleppa af lista Evrópusambandsins yfir um 3.000 einstaklinga og stofnanir sem sæta efnahagsþvingunum Evrópusambandsins vegna innrásar Rússa í Úkraínu.Fólkið og fyrirtækin á listanum sæta frystingu eigna og takmörkunum á ferðafrelsi. HART DEILT UM LISTANN Frakkar beittu sér fyrir því að fá Usmanov tekinn af listanum og yfirvöld í Lúxemborg þrýstu á að nafn Friedman hyrfi þaðan líka. Frakkar hafa borið við þjóðaröryggi en grunur leikur á að þeir vilji hlífa Usmanov til að liðka fyrir lausn fransks kaupsýslumanns sem dæmdur var í tíu ára fangelsi í Aserbaídsjan fyrr á þessu ári.Í gær virtist sem samkomulag hefði náðst um að taka þá Usmanov og Friedman af listanum en það var dregið til baka þegar leið á kvöldið.