Landsréttur staðfesti í síðustu viku úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra um að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 9. október. Maðurinn er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot og annað ofbeldi gegn sambýliskonu sinni á margra ára tímabili.Konan tjáði sig um áralangt ofbeldi mannsins gagnvart sér þegar lögreglan kom á heimili fólksins undir lok ágúst. Hún lýsti miklu líkamlegu ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi, stjórnun og kúgun. Hún sagði manninn ítrekað hafa tekið sig hálstaki auk þess sem hann hefði stungið hana í bakið og neytt sig til kynlífs.Við rannsókn lögreglu kom í ljós myndefni í síma mannsins þar sem hann virtist hafa mök við konuna meðan hún svaf. Konan vissi ekki af þessum upptökum og varð fyrir áfalli þegar hún sá myndirnar.Maðurinn hefur játað sök að hluta, bæði kynferðisbrot og o