Bandarísk stjórnvöld vilja opna tvær nýjar herstöðvar á Grænlandi, samkvæmt heimildum danska ríkisútvarpsins DR. Fjölmiðillinn hefur eftir heimildum sínum að Bandaríkjamenn vilji auka hernaðarmátt sinn í landinu og að tvær nýjar herstöðvar séu hluti af þeim áformum. Ekki er vitað hvar nýju herstöðvarnar yrðu. Bandaríkjamenn hafa áður sýnt flugvellinum í Narsarsuaq áhuga.Bandaríkin, Danmörk og Grænland sömdu nýlega um varnarviðbúnað Bandaríkjanna á Grænlandi eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gerði ítrekað kröfur um að fá yfirráð yfir Grænlandi. Margt er á huldu um hvað samningurinn felur í sér. Danir fullyrða að fullveldi Grænlands og Færeyja sé virt í samningnum. Trump, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku heimastjórnarinn