Neyðarástandi vegna El Niño lýst yfir í Kaliforníu

Ríkisstjóri Kaliforníu, Gavin Newsom, lýsti yfir neyðarástandi í ríkinu í gær vegna El Niño. Talið er að veðurfyrirbærið geti orsakað öfluga storma í Kaliforníu og hærri sjávarstaða geti valdið flóðum við ströndina.Newsom sagði að ríkið þyrfti að hafa vaðið fyrir neðan sig í stað þess að takast á við vandann þegar skaðinn væri skeður. Hann sagði að þessar aðgerðir væru til að veita þann stuðning sem þörf væri á og undirbúa ríkið og íbúana fyrir áhrif af El Nino.Með því að lýsa yfir neyðarástandi er hægt að hefja undirbúning til að takast á við mögulegar afleiðingar El Niño með fyrirvara, auðvelda ríkisstofnunum aðgang að úrræðum og koma búnaði eins og sandpokum og dælum til þeirra svæða þar sem hætta er á flóði.Við yfirlýsinguna byrjar þjóðvarðarlið Kaliforníu að skipuleggja sitt starf, vi
Neyðarástandi vegna El Niño lýst yfir í Kaliforníu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd