Blaðakona í framboði myrt – hafði fengið þrjár líflátshótanir

Perúsk blaða- og stjórnmálakona, Susy Aponte Polo, var skotin til bana á markaði í Caraz í Perú á laugardaginn. Hún var í framboði til embættis héraðsstjóra Áncash-héraðs og var að kynna sig fyrir kjósendum og dreifa kynningarefni ásamt stuðningsmönnum þegar árásin var gerð. Tveir aðrir særðust alvarlega í árásinni. Spænska dagblaðið El País greinir frá.Polo vakti mikla athygli fyrir umfjöllun sína á samfélagsmiðlum um meinta spillingu hjá sveitarfélögum, opinberum stofnunum, saksóknaraembættinu og lögreglunni.Í síðustu viku greindi hún frá því á samfélagsmiðlum að henni hefðu borist líflátshótanir símleiðis úr þremur fangelsum þar sem hún var vöruð við meintu samsæri um að taka hana af lífi. Hún sagði að líflátshótanirnar hefðu verið fyrirskipaðar af yfirmanni rannsóknardeildar lögreglunn
Blaðakona í framboði myrt – hafði fengið þrjár líflátshótanir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd