Þjóðverjar ætla að lækka skatt á eldsneyti í næsta mánuði til þess að bregðast við háu olíuverði. Heimsmarkaðsverð olíu hefur meira og minna verið hátt síðan í lok febrúar þegar Bandaríkin og Ísrael hófu stríð gegn Íran í lok febrúar.Þótt ekki sé allsherjarstríð enn í gangi þá er heldur ekki kominn á friður. Hótanir ganga á víxl og fregnir af árásum á einstaka skip á Hormússundi eru tíðar. Sundið, þar sem um fimmtungur allrar olíu heims fer um á friðartímum, er í raun enn lokað fyrir almennri umferðÞetta hefur áhrif um allan heim þar sem olía er jú enn sá orkugjafi sem knýr áfram mestallar samgöngur, framleiðslu og flutninga á vörum.Stjórnvöld í Þýskalandi tilkynntu í dag að skattur á eldsneyti yrði lækkaður 1. október.