Bandarísku fjölmiðlarnir ABC, CBS, Fox News and NBC hafa sammælst um að flytja ekki sjónvarpsfréttir frá Hvíta húsinu í mótmælaskyni eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti að hann ætlaði að meina fjölmiðlunum CNN, Politico og MSNOW aðgang að Hvíta húsinu.Trump tilkynnti ákvörðun sína sem tók gildi tafarlaust á föstudaginn.Fjölmiðlarnir ABC, CBS, Fox News, NBC og CNN skiptast á að sjá um sjónvarpsútsendingar frá viðburðum Hvíta hússins. CNN átti að sjá um útsendingu á mánudaginn en gat það ekki vegna banns Trumps. Í samstöðu með CNN ætla hinir fjölmiðlarnir að hætta að senda út frá Hvíta húsinu.Í sameiginlegri yfirlýsingu skrifuðu fréttastöðvarnar fimm: „Almenningur hefur brýnna hagsmuna að gæta af því að fá nákvæmar, óháðar upplýsingar um stjórnvöld sín. Engin ríkisstjórn ætti a