Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur

Hundruðum flugferða var seinkað á stórum flugvöllum í Bandaríkjunum í dag eftir að byggingarverkamenn skáru óvart í sundur kapal sem er nauðsynlegur fyrir flugumferðarstjórn.Flug voru stöðvuð eða þeim seinkað seinni part dagsins í dag á flugvöllum í New York, Pennsylvaníu, New Jersey og Massachusetts.Fjarskiptafyrirtækið Verizon, sem á kapalinn, segist ekki bera ábyrgð á skemmdunum en að unnið sé að viðgerð eins fljótt og auðið er, að því er fram kemur í frétt BBC. Skemmdirnar á kaplinum höfðu áhrif á kerfið sem er notað til að leiðbeina flugvélum við flugtak og lendingu, að sögn samgönguyfirvalda.Alþjóðaflugvöllurinn Newark Liberty í New Jersey varð verst úti í truflunum á flugumferðarstjórn í dag en 267 brottförum seinkaði þaðan í dag. 257 flugferðum sem voru á leið til Newark var einnig
Seinkanir á flugi í Bandaríkjunum: Kapall óvart skorinn í sundur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd