Spenna hefur aukist milli Rússa og Evrópuríkja sem styðja Úkraínu síðustu mánuði. Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, varaði við því fyrir helgi að Rússar hefðu í hyggju að ráðast með drónum og eldflaugum á bandamenn Úkraínu. Leyniþjónustugögn bendi til þess.„Raunveruleikinn er sá að á undanförnum árum hafa orðið hundruð svokallaðra „hybrid-aðgerða“ eða árása Rússa inn á evrópsk landsvæði, sem gerðist á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi,“ segir Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands í Úkraínu og Póllandi.Rætt var við Friðrik í Kastljósþætti kvöldsins.„Í Póllandi hafa verið skemmdaverk og í Búlgaríu núna í síðustu viku var vopnageymsla sem brann. Þetta er mjög mikið og á mjög mörgum stöðum,“ segir Friðrik. RÚSSAR REYNI AÐ ÝTA UNDIR ÓSAMSTÖÐU OG DEILUR Hann segir eitt helsta vopn og tæ