Björgvin Ingi Ólafsson, sviðsstjóri og meðeigandi hjá Deloitte, segir engan hafa getað séð fyrir hvernig gervigreind hefur þróast undanfarið og engan geta sagt til um hvernig hún muni þróast áfram.Eftir öryggisbrest hjá OpenAI í sumar hafa forkólfar sumra stærstu tæknifyrirtækja heims kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindar. Á sama tíma eru fjárfestingar í gervigreind og tækni tengdri henni orðnar að mikilvægum drifkrafti í hagvexti í Bandaríkjunum og Kína og þar með heiminum öllum.„En ég held að við þurfum aðeins að staldra við núna þegar við sjáum bæði forseta Bandaríkjanna og forseta Kína mæla sér mót í vikunni til þess að ræða þessar áskoranir,“ segir Björgvin. „Á sama tíma og helstu tæknifyrirtæki og gervigreindarfyrirtæki eru öll að segja: „Heyrðu, nú þurfum við að stald