Utanríkisráðherra Úkraínu, Andrii Sybiha, segir að innrás Rússa í landið hafi leitt til þess að Úkraína sé orðin drónastórveldi. Úkraínumenn séu tilbúnir að deila þekkingu sinni á nýsköpun og framleiðslu dróna með vinaþjóðum, þar á meðal Íslandi. Rætt var við Sybiha í Kastljósþætti kvöldsins. FUNDAÐI MEÐ UTANRÍKISRÁÐHERRA ÍSLANDS UM HELGINA „Úkraínska þjóðin hefur barist gegn innrás Rússa í meira en fjögur ár og fyrir okkur skiptir það mestu að finna fyrir því að við stöndum ekki ein. Við erum ekki einir og við gjöldum dýrasta verðið,“ segir Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu.Hann fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra, um helgina og segir slíkar heimsóknir og fundi með kollegum mikilvægar og veita hvatningu.„Við ræddum hagnýt mál um samvinnu þjóðanna. Ég up