Nærri tvær milljónir beðnar að yfirgefa heimili sín

Fellibylurinn Dujuan geisar yfir suðvesturströnd Japan og nærri tvær milljónir manna hafa verið beðnar um að yfirgefa heimili sín. Talið er að fellibylurinn haldi áfram í norðausturátt áður en hann leysist upp í Kyrrahafi síðar í vikunni.Japanska veðurstofan varaði við því að fellibylurinn gæti orðið lífshættulegur en lækkaði svo hættustigið víða. Viðvaranir á hæsta stigi eru enn í gildi í Shinagawa, Toshima og Niijima og veðurstofan varar enn við lífshættu í bænum Oshima.Yfirvöld í Japan biðja almenning að fylgjast með upplýsingum um veðrið. 50 ÞÚSUND ÁN RAFMAGNS Vindhraði fellibylsins hefur verið 130 kílómetrar á klukkustund en vindhviður hafa náð nær 200 kílómetrum á klukkustund. Hvassir vindar hafa valdið rafmagnsleysi hjá meira en 50 þúsund manns, auk þess sem hundruðum flugferða h
Nærri tvær milljónir beðnar að yfirgefa heimili sín

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd