Vilja efla þjónustu við aðstandendur heilabilaðra

Gera má ráð fyrir að hátt í sjö þúsund manns, sextíu ára og eldri, séu með heilabilun á Íslandi þó fjöldi þeirra sem hafa fengið formlega greiningu sé mun minni. Engar opinberar tölur liggja fyrir en norskar rannsóknir benda til að hlutfallið sé í kringum átta prósent í þessum aldurshópi.Fyrsta fimm ára aðgerðaáætlun stjórnvalda til að bæta þjónustu við heilabilað fólk var sett fram 2019 og nú hefur ný áætlun verið birt. Þar er lögð áhersla á forvarnir, upplýsingagjöf, fjölgun úrræða og hlutverk aðstandenda en rætt var um stöðu þeirra á sérstöku málþingi Heilahjálpar í dag.„Það sem er mikilvægast fyrir aðstandendur, einstaklinga með heilabilun er að einstaklingurinn sem er með heilabilun fái viðeigandi þjónustu. Þess vegna er aðgerðaáætlunin svolítið bundin við það að við erum að leggja áh
Vilja efla þjónustu við aðstandendur heilabilaðra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd