„Þetta er lögbundin þjónusta sem við eigum áfram að veita – án fjármagns?“

Samkvæmt nýja fjárlagafrumvarpinu missa sveitarfélögin 1,1 milljarð króna á ári frá ríkissjóði sem áður var eyrnamerktur verkefnum sveitarfélaga við farsæld barna sem þurfa sértækan samhæfðan stuðning. Verkefnastjóri farsældar segir niðurskurðinn setja fjölskyldur og börn sem þurfi á stuðningi að halda í afleidda biðstöðu. Á VIÐ UM 6000 BÖRN Á LANDINU ÖLLU OG FJÖLSKYLDUR ÞEIRRA Í farsældarlögum sem tóku gildi árið 2021 var kveðið á um styrk til sveitarfélaga frá ríkinu. Styrkurinn fór í að innleiða farsældarlögin og ráða starfsfólk eins og málastjóra sem halda utan um alla þræði sem snúa að börnum sem þurfa á stuðningi að halda og fjölskyldum þeirra. Markmiðið er að þau fái samþætta og viðeigandi þjónustu á réttum tíma, þannig að þau falli ekki á milli kerfa og létta álagi af foreldrum
„Þetta er lögbundin þjónusta sem við eigum áfram að veita – án fjármagns?“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd