„Tjónið sem þegar er orðið næst ekki til baka“

Icelandair segir frestun verkfalls ekki draga úr þeim skaða sem verkfallsboðun flugvirkja hafi þegar valdið starfsemi Icelandair, ferðaþjónustunnar, íslensku atvinnulífi og samfélaginu í heild, heldur framlengja óvissutímabilið og auka tjón allra enn frekar.Ef trú sé á að samtalið geti leitt til niðurstöðu telji Icelandair eðlilegast að Flugvirkjafélag Íslands dragi verkfallsboðunina til baka, frekar en að fresta henni, og að viðræður haldi áfram af fullum krafti.Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Icelandair.„Icelandair fagnar afstöðu Flugvirkjafélags Íslands til þess að vilja halda samtalinu áfram með það að markmiði að ná samningi. Vilji Icelandair til að semja er sömuleiðis til staðar, en félagið getur ekki fallist á frestun verkfalls um eina viku,“ segir í yfirlýsingunni.Verkfallsboðun
„Tjónið sem þegar er orðið næst ekki til baka“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd