Tóku sig saman og sniðgengu Trump

Fimm stærstu sjónvarpsstöðvarnar í Bandaríkjunum tóku höndum saman í dag og neituðu að flytja fréttir af Donald Trump forseta, í mótmælaskyni við ákvörðun hans um að meina þremur miðlum aðgangi að Hvíta húsinu.Trump fyrirskipaði á föstudag að CNN, MS NOW og Politico skildu ekki fá að koma inn í Hvíta húsið til að sinna störfum sínum. Þetta er enn einn kaflinn í áralangri sögu Trumps þar sem hann ræðst gegn fjölmiðlum.Í sameiginlegri yfirlýsingu sögðu ABC, CBS, CNN, Fox News og NBC að hagsmunir almennings lægju í því að fá nákvæmar og óháðar fréttir af stjórnvöldum. „Engin ríkisstjórn ætti að takmarka aðgang fréttamiðils vegna þess að hún er ósátt við fréttaflutning hans,“ sagði í yfirlýsingunni.Þau ætla ekki að sýna frá störfum Trumps í dag en meðal annars stóð til að segja frá ferð forset
Tóku sig saman og sniðgengu Trump

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd