Í liðinni viku bárust þær fréttir að meirihlutinn í borgarstjórn vildi afturkalla lóðir sem Rússneska rétttrúnaðarkirkjan og Félag múslima fengu úthlutað fyrir alllöngu síðan, án endurgjalds, enda hefðu framkvæmdir ekki hafist innan tilskilinna fresta. Þriðja trúfélagið, Ásatrúarfélagið, sem fékk úthlutað lóð um svipað leyti, byrjaði að byggja fyrir ellefu árum. Þar hafa framkvæmdir gengið hægt - en ólíkt hinum trúfélögunum þarf Ásatrúarfélagið ekkert að flýta sér.Tillaga um afturköllun lóðanna var lögð fyrir borgarráð á fimmtudag en afgreiðslu hennar frestað. Ástæðan er sú að ekki þótti öruggt að fulltrúar trúfélaganna hefðu fengið tilkynningu um að þetta stæði til - að minnsta kosti ekki með formlega réttum hætti.Það er þó greinilegt hver vilji meirihlutans er.En eitt er að fá lóð - ann