Fyrirtaka fór fram í máli manns sem ákærður er fyrir manndráp í heimahúsi á Kársnesi í nóvember á síðasta ári.Ómar Örn Bjarnþórsson, verjandi mannsins, segir að lögð hafi verið fram gögn frá tveimur réttarlæknum frá Svíþjóð. Þeir lögðu mat á mögulega dánarorsök hins látna. Töluvert er síðan ákæra var gefin út í málinu og hafði verið beðið eftir niðurstöðunum áður en aðalmeðferð gat hafist.Maðurinn sem er ákærður er af grískum uppruna og á þrítugsaldri en hinn látni er Portúgali sem var um fertugt.Ákærða er gert að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést.Lögreglu barst tilkynning í nóvember á síðasta ári um meðvitundarlausan mann í íbúð á Kársnesi. Maðurinn var látinn