Flugfarþegar eiga rétt á endurgreiðslu eða endurbókun ef flug þeirra falla niður vegna verði verkfallsaðgerðir flugvirkja að raunveruleika annað kvöld.Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir samtökin hafa birt leiðbeiningar um hvað farþegar geti gert.Margir hafi þegar haft samband við samtökin til að kanna rétt sinn. Hann segir skýrar reglur gilda um rétt farþega sem finna megi á vef samtakanna. > Fólk á alltaf rétt á vali milli endurgreiðslu og endurbókunar. Fólk á alltaf rétt á aðstoð og þjónustu ef það verður fyrir einhverri röskun, til dæmis með hóteli eða einhverjum fargjöldum eða svoleiðis, flutningi til og frá gististað og þess háttar. Síðan á fólk oft rétt á stöðluðum skaðabótum og við erum einmitt með á netinu okkar reiknivél sem reiknar út hvort og hvaða skaðabótum fó