Nú fer fram hávær umræða um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar. Umræðan virðist að mestu koma frá þjálfurum og álitsgjöfum. Helsta breytingin sem kallað er eftir er að fjölga liðum úr 12 í 14 og leika tvöfalda umferð, heima og að heiman. Þar með yrði horfið frá núverandi fyrirkomulagi, sem tók gildi árið 2022 þar sem deildinni er skipt í efri og neðri hluta eftir 22 umferðir. Einnig hefur verið kallað eftir því að mótinu ljúki fyrir landsleikjahléið í september og að svokölluðum „tilgangslausum“ leikjum verði fækkað. Í því sambandi þarf að hafa í huga að UEFA hefur sameinað tvo fyrri landsleikjaglugga í einn lengri glugga að hausti. Bæði 14 liða deild með tvöfaldri umferð og 10 liða efsta deild, þar sem leiknar yrðu þrjár umferðir, voru skoðaðar mjög vandlega á sínum tíma. Niðursta