Yfirdeild MDE hafnar máli Lárusar Welding

Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað því að taka fyrir mál Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis.Mannréttindadómstóllinn hafði áður sýknað íslenska ríkið af kröfum Lárusar sem taldi brotið á rétti sínum til sanngjarnra réttarhalda með þegar sérfróður meðdómandi var skipaður í Stím-málinu. Lárus fékk fimm ára dóm í Héraðsdómi fyrir sinn þátt í málinu.Í framhaldi af því fól Lárus lögmanni sínum að óska eftir því að málinu yrði vísað til yfirdeildar dómstólsins en því hefur nú verið hafnað.Lárus Welding.RÚV
Yfirdeild MDE hafnar máli Lárusar Welding

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd