Játar sök eftir að hafa ekið inn í hús og valdið dauða sofandi konu

Tvítugur maður hefur játað sök í máli sem kom upp í bænum Tilst, í úthverfi Árósa í sumar. Maðurinn ók á ofsahraða um götur bæjarins á flótta undan lögreglu. Eftirförin endaði með því að hann ók inn í lítið einbýlishús með þeim afleiðingum að kona á sjötugsaldri sem svaf í húsinu lét lífið.Í frétt DR segir að farþegar í bílnum hafi hrópað á ökumanninn að stöðva bílinn, en hann virti þá að vettugi.Hann er ákærður fyrir manndráp í umferðinni, sem er nýlegt ákvæði í dönskum hegningarlögum og á við þegar ökumaður veldur dauða með sérlega ógætilegum akstri.Engin vitni verða kölluð til og engin sönnunargögn lögð fram þar játning liggur fyrir.Ungi maðurinn ók inn í húsið þar sem konan svaf.DR / Emil Nordkvist Johansson
Játar sök eftir að hafa ekið inn í hús og valdið dauða sofandi konu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd