Askur er fjórða sólóplata Teits Magnússonar síðan reggísveitin Ojba Rasta lagðist í dvala. Askur kemur í kjölfar platnanna 27, Orna og 33 sem hafa allar þrjár hafa hlotið lof, prís og áheyrn tónlistaráhugafólks og poppfræðinga.Á Aski heldur tónheimur Teits áfram að þróast í lífræna átt og hann fær innblástur í folk, poppi, rokki og tropicalia í bland við íslenska texta úr fortíð og nútíð. Upptökustjóri plötunnar er Hallberg Hallbergsson úr Jakobínarínu og Brian Jonestown Massacre setti síðan sterkan blæ á hljóm heildarverksins.Lögin Sjalið, Fegurð, Gullauga & Fjöllin og fjarlægðin af Aski hafa heyrst töluvert og það síðastnefnda rataði í fyrsta sæti Vinsældalista Rásar 2.Teitur mætti með Ask í hljóðver til Daníels Jóns Baróns Jónssonar og ræddi ferilinn og plötu vikunnar á Rás 2.