Markaðsöflin eru að keyra skipti yfir í hreina, endurnýjanlega orkugjafa með þvílíkum krafti að ekki verður aftur snúið. Þetta segir Simon Stiell, loftslagsstjóri Sameinuðu þjóðanna, en ný skýrsla Alþjóðastofnunar um endurnýjanlega orku (IRENA) var birt í dag.Samkvæmt henni bættust 693 gígavött af nýrri endurnýjanlegri orku við á heimsvísu árið 2025. Aldrei hefur annað eins magn orkugetu bæst við á einu ári en þetta samsvarar meira en helmingi allrar raforkuframleiðslugetu Bandaríkjanna.Til að ná markmiði um að þrefalda framleiðslugetu endurnýjanlegrar orku fyrir árið 2030, sem ríki heims komu sér saman um á loftslagsráðstefnunni COP28 árið 2023, þarf þó enn að bæta í.Heildarframleiðslugetan er nú rúm 5 teravött, en ef þróunin heldur áfram af sama krafti og á síðasta ári verður hún komin u