Hinn fimm ára Grettir Thor Árnason hafði verið veikur heima í nokkra daga og honum var farið að leiðast þegar hann fékk þá hugmynd að búa til myndband með leikfangadýrunum sínum. Móðir hans, Þórhildur Stefánsdóttir, kunni betur á myndavélina og gekk því til liðs við hann.