Aðildarríki ESB náðu í dag samkomulagi um að framlengja refsiaðgerðir gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu.Deilt var um hvort fara ætti að kröfum Frakklands og Lúxemborgar um að losa tvo auðkýfinga af svarta lista bandalagsins sem telur um 3.000 einstaklinga og fyrirtæki og kveður meðal annars á um takmörkun ferðafrelsis og frystingu eigna.Samkvæmt fréttum eftir fund sendiherra ríkjanna í dag samþykktu aðildarríkin að Alisher Usmanov og Mikhail Fridman verði fjarlægðir af listanum.Refsiaðgerðirnar verða framlengdar um þrjú ár nema eitthvað aðildarríki setji sig upp á móti þeim.