Rúsínuunnendur hafa víða gripið í tómt í verslunum að undanförnu. Rúsínur frá Sun-Maid, sem er einn stærsti framleiðandi rúsína í heiminum, eru búnar á Íslandi.Mannleg mistök í innkaupum urðu til þessa, segir Hildur Soffía Vignisdóttir, markaðsstjóri hjá Nathan sem flytur þær inn. Rúsínurnar eru fluttar til Íslands frá Kaliforníu í Bandaríkjunum og aðfangakeðjurnar eru langar.Þetta er, að sögn Hildar Soffíu, í fyrsta skipti sem rúsínurnar klárast á Íslandi. Gert er ráð fyrir að þær verði komnar aftur í næstu eða þarnæstu viku.Í svörum Bónuss við fyrirspurn fréttastofu segir að síðustu vikur hafi ekki verið til Sun-Maid rúsínur. Þó séu til Bónus-rúsínur og Euroshopper-rúsínur.Innkaupastjóri Krónunnar segir hins vegar að ekki hafi orðið vart við skort á rúsínum hjá þeim