Skýrsla sem Fjarskiptastofa vann um hvernig lokun 2G og 3G farnetskerfanna gekk var kynnt í ríkisstjórn á föstudag. Í skýrslunni kemur fram að vandræði með neyðarhringingar hafi ekki komið upp fyrr en seint í ferlinu. Lokun kerfanna var á ábyrgð og að frumkvæði fjarskiptafyrirtækjanna og hafði Fjarskiptastofa engar valdheimildir til að stöðva framkvæmdina.„Við nýttum aðrar heimildir til þess að beina þessu verkefni í betri farveg en við höfðum ekki beina heimild til þess að stöðva þetta,“ segir Hrafnkell Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu. FLEIRI ELDRI KERFUM VERÐUR SKIPT ÚT Fleiri verkefni eru á döfinni þar sem eldri kerfum verður skipt út fyrir nýrri tækni og hefur Fjarskiptastofa lagt til að stofnunin fái auknar inngripsheimildir.„Það kann vel að vera að einhver óvænt atvik eða aðst