Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, segir að skráning hlaðvarpa sem fjölmiðla verði meðal þess sem skoðað verði við heildarendurskoðun fjölmiðlalaga. Hann segir jafnframt mikilvægt að eftirlit sé ekki svo íþyngjandi að það kæfi nýja vaxtarbrodda í fæðingu.