Farið fram á þyngri refsingu yfir Margréti Löf og sviptingu erfðaréttar

Saksóknari í máli Margrétar Höllu Hansdóttur Löf hefur farið fram á að refsing hennar verði þyngd úr 16 árum í 17 fyrir Landsrétti.Þetta herma heimildir fréttastofu en Vísir greindi fyrst frá. Margrét var dæmd til 16 ára fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjaness í desember á síðasta ári fyrir að verða föður sínum að bana og fyrir stórfellda líkamsárás gegn móður sinni. Hún var einnig ákærð fyrir tilraun til þess að bana móður sinni en var ekki sakfelld fyrir það.Margrét áfrýjaði dóminum til Landsréttar. Aðalmeðferð fór fram fyrir luktum dyrum í byrjun mánaðar og lauk 10. september. Dómur mun að öllum líkindum liggja fyrir í byrjun október.Hálfbróðir Margrétar fór fram á að hún yrði svipt erfðarétti eftir föður sinn. Héraðsdómur féllst ekki á þá kröfu þar sem hann taldi að ákæruvaldið sjálft
Farið fram á þyngri refsingu yfir Margréti Löf og sviptingu erfðaréttar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd