Kjarasamningar flugvirkja losnuðu um síðustu áramót og viðræður hófust í nóvember á síðasta ári. Þann 13. febrúar tóku Samtök atvinnulífsins ákvörðun um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Illa hefur gengið að ná saman og í upphafi síðustu viku var verkfallsboðun samþykkt með 88,3 prósentum greiddra atkvæða.Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst því að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, var til viðtals í Vikulokunum á laugardaginn.Sérfræðingur í samningatækni varar við áhrifum þess að stjórnvöld setji lögbann á verkfall flugvirkja. Ótímabundið verkfall hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags.Samningurinn sem rann úr gildi um áramótin var undirr