Merz situr sem fastast í embætti kanslara

Friedrich Merz Þýskalandskanslari ljáir ekki máls á því að hann hætti sem kanslari eða sem leiðtogi Kristilegra demókrata, þótt flokkur hans hafi beðið sögulegt afhroð í kosningunum í Mecklenburg-Vorpommern í gær. Kristilegir demókratar fengu þar innan við fimm prósent atkvæða og falla þar með útaf þingi sambandsríkisins - sem hefur aldrei gerst í sögu flokksins frá því um miðja síðustu öld.Merz ræddi við fjölmiðla í Berlín í morgun, að afstöðnum fundi flokksforystunnar, þar sem farið var yfir úrslitin.„Enginn ræddi um mannaskipti, hvorki í gærkvöldi né í morgun - enginn,“ sagði Merz, þegar hann var spurður hvort hann hefði nægilegan stuðning innan Kristilegra demókrata, til að halda áfram sem kanslari.Merz viðurkenndi að óvinsældir hans sem kanslara hefðu örugglega haft áhrif á niðurstöðu
Merz situr sem fastast í embætti kanslara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd