Stjórnvöld munu grípa til nauðsynlegra aðgerða

„Með þessari stöðu fylgist ríkisstjórnin nákvæmlega og mun grípa til þeirra aðgerða sem nauðsynlegar eru á hverjum tíma,“ segir Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, er hann var spurður út í viðbrögð stjórnvalda við fyrirhuguðu verkfalli flugvirkja hjá Icelandair.Lítið sem ekkert hefur þokast í samningaviðræðum og að óbreyttu leggja flugvirkjar niður störf á miðvikudaginn. Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins krafði fjármálaráðherra svara um áhrif verkfallsins á ríkisfjármálin og afkomu næsta árs.Daði Már svaraði því til að verkfallið myndi hafa veruleg áhrif á fjölda atvinnugreina og ferðafrelsi íslensku þjóðarinnar. Sagðist hann enn binda vonir við að það takist að leysa deiluna við samningaborðið en bætti við: „En það er hins vegar alveg rétt að þarna er
Stjórnvöld munu grípa til nauðsynlegra aðgerða

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd