Skerðing í línuívilnun kemur niður á litlum byggðum

Línuívilnun minnkar úr 400 tonnum af þorski í 300 á milli ára. Landssamband smábátaeigenda (LS) kallar eftir að þeim 200 tonnum sem út af stóðu eftir síðustu strandveiðivertíð verði bætt við línuívilnun.Þá hafnar sambandið þeirri staðhæfingu sem fram kemur í tilkynningu innviðaráðuneytis um úthlutun byggðakvóta að línuívilnun þjóni ekki lengur upphaflegum markmiðum sínum.Þvert á móti hafi hún sjaldan verið mikilvægari þar sem hún skapi forsendur fyrir heilsársstörf smábátaeigenda. Óbreytt ástand muni leiða til samþjöppunar veiðiheimilda og skapa aukið álag á strandveiðikerfið. Hvað er línuívilnun? Dagróðrarbátar sem veiða á línu geta landað meiri afla en kvóti þeirra segir til um, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Ívilnunin nær til þorsks, ýsu, steinbíts, keilu, löngu og gullkarfa. Sé lína
Skerðing í línuívilnun kemur niður á litlum byggðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd