Embætti landlæknis hefur fellt starfsleyfi sex lækna hér á landi niður. Að auki var starfsleyfi eins læknis takmarkað. Þetta var gert í kjölfar þess að blaðamaður Heimildarinnar sendi embættinu lista yfir þrettán lækna sem höfðu misst starfsleyfi erlendis en væru samt sem áður með starfsleyfi hér á landi.