Á Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem þjónar þverskurði þjóðarinnar, byggir fólk upp svo það nái vopnum sínum eftir veikindi og sendir aftur út í lífið. En nú þarf Reykjalundur á endurhæfingu að halda, uppbyggingu sem þjóðin getur stuðlað að en fram undan er landssöfnun á vegum Hollvina Reykjalundar. Björg Hákonardóttir sem er sviðsstjóri þjálfunar hjá Reykjalundi og Vignir Freyr Andersen sem sinnir þar viðhaldi fasteigna heimsóttu Morgunútvarp Rásar 2 og sögðu frá starfinu og stóru þjóðarátaki sem snýr að söfnun fyrir bætta aðstöðu á Reykjalundi. MIKILVÆGUR HLEKKUR Í HEILBRIGÐISKERFINU „Miðað er við að allir sem koma þarna inn nái aftur bæði líkamlegri og andlegri færni eftir veikindi eða áföll sem þau hafa orðið fyrir. Þetta er einstaklingsmiðuð þjál