Frakkar standa í vegi fyrir framlengingu refsiaðgerða Evrópusambandsins gegn Rússlandi. Þeir vilja hlífa nafntoguðum auðmanni til að tryggja frelsi meints njósnara í Aserbaídsjan.Refsiaðgerðir ESB gegn Rússlandi vegna innrásarinnar í Úkraínu fela meðal annars í sér að um 3.000 einstaklingar og fyrirtæki eru á svokölluðum svörtum lista sem er uppfærður og staðfestur á hálfs árs fresti. Vera á listanum felur í sér ferðatakmarkanir og frystingu eigna innan landamæra ESB.Aðildarríkin 27 verða að samþykkja aðgerðirnar einróma. Verði aðgerðirnar ekki framlengdar falla þær úr gildi. Þær átti að framlengja í síðustu viku en ákvörðun var frestað, en þetta er í fyrsta sinn sem gripið hefur verið til þess.Frakkar neituðu að samþykkja listann nema rússnesk-úsbekíski auðmaðurinn Alisher Usmanov væri fj