Upplýsingar um skólabörn voru aðgengilegar í gegnum mötuneytisvef

Magnúsi Franklín, foreldri í Hafnarfirði, brá í brún á föstudaginn er hann fann persónuupplýsingar um önnur börn en hans eigin á vef Matarstundar, sem sér um skólamáltíðir í leik- og grunnskólum í Hafnarfirði. Magnús starfar innan tæknigeirans og vinnur mikið með netöryggi.Hann segist hafa verið að skoða matseðla á vefsíðunni er hann fann hlekk í gegnum síðukóða, eða dev tools eins og það kallast.Hlekkurinn leiddi hann að Excel-skjali sem sýndi upplýsingar á borð við hvort börn væru með ofnæmi fyrir tiltekinni fæðu eða með sérþarfir eins og einhverfu sem gætu haft áhrif á matarvenjur.Magnús kveðst strax hafa tilkynnt skóla barnanna, fyrirtækinu og Persónuvernd um lekann. Hann segir það fyrirtækinu til málsbóta að hafa brugðist hratt og vel við. Honum þyki aftur á móti forkastanlegt að svon
Upplýsingar um skólabörn voru aðgengilegar í gegnum mötuneytisvef

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd