Engir fundir hafa verið boðaðir hjá Ríkissáttassemjara vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja Icelandair.Ástáður Haraldsson, ríkissáttasemjari segist reiðubúinn að boða fund að beiðni viðsemjenda en eins og staðan blasi við honum beri mikið í milli. Samtöl hafi átt sér stað um helgina, hugmyndir viðraðar og einhverjar þreifingar verið í gangi. Ástráður segir að staðan sé viðkvæm. Að óbreyttu hefst verkfall flugvirkja Icelandair á miðnætti annað kvöld.