Kópavogsbær ætlar að skoða hvort fólk þurfi að hafa búið á Íslandi í tiltekinn tíma til að fá fulla fjárhagsaðstoð. Bæjarstjóri vísar til danskra reglna og segir hlutfall útlendinga meðal þeirra sem fá aðstoð hjá bænum hafa hækkað úr 43 í 71 prósent frá árinu 2021. Engar vísbendingar séu þó um misnotkun kerfisins.