Hafnarfjarðarbær og Stólpi hafa náð samningum um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi sem rísa á við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði.Byggja á 130 hús með 260 íbúðum sem verða 35 fermetrar. Fyrirtækið Stólpi sér um uppsetningu og leigir húsnæðið til fyrirtækja til afnota fyrir starfsfólk þeirra.„Þetta er í raun og veru mjög góð lausn fyrir þessi fyrirtæki,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Þetta er líka gott fyrir okkur því að við reiknum með að það fækki íbúum í óleyfisíbúðum sem eru því miður of margar í atvinnuhverfum og við lítum þannig á að þetta verði öruggara og betra húsnæði fyrir þá sem þar búa,“ segir Orri.Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar rísi á síðari hluta 2027. EKKI VERIÐ GERT ÁÐUR Á ÍSLANDI Lóðarleigusamningar verða til 10 ára. Hægt v