Jóhanna Klara Stefánsdóttir hefur verið ráðin nýr forstjóri rafverktakafyrirtækisins Rafals ehf., en hún tekur við af Valdimar Kristjónssyni sem hefur verið forstjóri síðustu 15 ár og er meirihlutaeigandi félagsins. Jóhanna kemur frá Samtökum iðnaðarins, en hún hefur verið sviðsstjóri mannvirkjasviðs þar.