Donald Trump segir að hinn stærðarinnar sigurbogi sem hann vill reisa í höfuðborg Bandaríkjanna eigi að verða hernaðarmannvirki. Boginn eigi, að beiðni yfirmanna bandaríska hersins, að hýsa leyniskyttur og dróna og vera geymsla fyrir skotfæri. Með þessu er hann talinn vilja komast hjá lögsóknum og auðvelda sér að reisa bogann.