Átján menn grunaðir um morðið á Jovenel Moise forseta Haítí fyrir fimm árum hafa verið fluttir til Bandaríkjanna þar sem þeirra bíða réttarhöld. Um það bil tuttugu þrautþjálfaðir kólumbískir málaliðar ruddust inn á heimili Moise 7. júlí 2021 og skutu hann til bana.Öryggissveitir forsetans gerðu ekkert til að vernda líf hans. Flestir hinna ákærðu eru úr hópi málaliðanna en þar er einnig að finna Joseph Felix Badio, sem starfaði á spillingarskrifstofu dómsmálaráðuneytis Haítí og er talinn einn höfuðpaura málsins.Ríkissaksóknari á Flórída segir engu verða til sparað við að tryggja réttlætið, þegar hafi þrír tugir manna verið ákærðir fyrir morðið á Moise og fleiri sé leitað. Utanríkisráðuneyti Kólumbíu sagðist í yfirlýsingu í gær fylgjast náið með flutningi sautján þarlendra ríkisborgara frá H