Lítill svartur fugl í útrýmingarhættu hlaut metkosningu

Aldrei hafa fleiri kosið um fugl ársins á Nýja-Sjálandi en að þessu sinni. Sigurvegarinn varð lítill svartur fugl í mikilli útrýmingarhættu sem heitir Black robin, sem kannski gæti útlagst húmglóbrystingur upp á íslensku.Heimkynni þessa smávaxna fugls eru á Chatham-eyjum í um átta hundruð kílómetra fjarlægð frá Suðureyju Nýja-Sjálands. Á níunda áratugnum voru aðeins fimm fuglar eftirlifandi af stofninum, þar af aðeins einn frjór kvenfugl.Nú á hún 350 afkomendur á tveimur verndarsvæðum. Náttúruverndarsamtök á eyjunum, sem vinna að uppbyggingu þriðja búsvæðisins, hófu mikla kosningaherferð fyrir fuglinn. Á meðfylgjandi myndskeiði má heyra söng hans.Það borgaði sig því svarti glóbrystingurinn skaut þeirri frægu, ófleygu páfagaukategund kakapó og fálkanum karaearea ref fyrir rass í keppninni u
Lítill svartur fugl í útrýmingarhættu hlaut metkosningu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd