Karlmaður var fluttur í skyndingu á sjúkrahús í Austin, höfuðborg Texas, í gær eftir að liðsmaður innflytjendastofnunar Bandaríkjanna skaut hann í búkinn, að sögn á flótta. Ástand mannsins er sagt stöðugt.Atvikið hefur valdið mikilli reiði meðal ráðamanna í ríki og borg sem krefjast ítarlegrar rannsóknar. Borgarstjórinn Kirk Watson segir það mikil vonbrigði að annað eins skuli hafa gerst í Austin þar sem aðgerðir stofnunarinnar færðust í aukana nánast á augabragði fyrir fáeinum vikum.Borgaryfirvöld vilja ekki að svo stöddu greina frá nafni, aldri eða þjóðerni þess sem skotinn var og innflytjendastofnunin hefur ekkert sagt. Watson sagði afar óviðeigandi að stofnunin kæmi ein að rannsókninni og þingmaðurinn Greg Casar tók í sama streng með þeim rökum að hún hefði ekki sagt satt um önnur tilv