Trump-stjórnin undirbýr refsiaðgerðir gegn Alþjóðalega sakamáladómstólnum og fljótlega verður greint frá innihaldi þeirra. Reuters-fréttaveitan hefur þetta eftir tveimur heimildarmönnum kunnugum málinu.Ríkisstjórn Donalds Trump hefur lengi viljað koma dómstólnum á kné og utanríkisráðherrann Marco Rubio boðaði í sumar að hann skyldi lagður niður. Bandaríkin viðurkenna ekki lögsögu hans og eiga ekki að honum aðild.Sakamáladómstólnum var komið á laggirnar 2002, hann hefur aðsetur í hollensku borginni Haag og hefur það hlutverk að rannsaka og dæma í málum á borð við stríðsglæpi, glæpi gegn mannúð og hópmorð.The Wall Street Journal hefur eftir opinberum heimildum að ákvörðun refsiaðgerða verði tilkynnt svo snemma sem í vikunni meðan leiðtogar heimsins taka þátt í Allsherjarþingi Sameinuðu þjóða